Fyrsta bloggfærslan

Jæja þá er maður loksins kominn af stað með bloggsíðu. Mér var farið að finnast ég eitthvað skrýtinn. Það eru jú allir að blogga, meira að segja stjórnmálamennirnir! Þessi síða mín verður um allt og ekki neitt, en hún mun örugglega litast af þeirri staðreynd að ég vinn hjá Modernus (sjá www.modernus.is/sv) fyrirtækinu sem m.a. sýnir okkur svart á hvítu hversu gríðarlega vinsælt þetta fyrirbæri "bloggið" er. Pæliði annars íðí: 137.010 manns fóru inn á blog.central (vefhluti á visir.is) í síðustu viku einni saman! Nú er að sjá hvort gömlum hundi tekst að læra að sitja. Ég lofa engu, en er þó allavega byrjaður. Jibbíí.. Svalur


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og fjórtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband